Rutla litla flugustelpa
Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan
24.01.2008 22:16:09 / flugustelpa

allrightyru

Þá er maður gjörsamlega búin að taka út veikindin fyrir þennan mánuð. Hvað er það eiginlega með Janúar og veikindi? Ég var svona í fyrra líka. Hef misst svo mikið úr vinnunni að ég er nánast búin að gleyma hvernig er að mæta í vinnuna. Ég er gjörsamlega búin að taka sjálfan mig út úr samfélaginu, hef varla farið út allan þennan mánuð, þetta er ömurlegt. Það getur farið illa með mann í sálinni.

Mig vantar mjög að komast í eitthvað félagslíf. Gera eitthvað meira heldur en að vinna, fara í heilsurækt, hitta fólk, vera meira úti. Ég er búin að taka ákvörðun að fara á rope yoga námskeið,, en það byrjar ekki fyrr en í mars. Ég var sem sagt of sein að sækja um núna. 

Ég er búin að sækja um fullt af vinnum en hef ekki farið í eitt einasta viðtal, sem er skrýtið því ég sótti um svipuð störf síðasta sumar og fékk fullt af viðtölum en var ekki með reynsluna sem ég er með núna. Þetta hlýtur að fara að gerast bráðum. Ég þarf bara að koma mér úr þessum veikindum og fara að taka þátt í lífinu.  

Er komin með nýja skoðanakönnun sem þið megið endilega segja mér ykkar skoðun ;)

En smá þakklætislisti í lokin

1. Ég á sjónvarp til að horfa á þegar ég er veik

2. Ég á tölvu til að leika mér í þegar mér leiðist

3. Ég á systur sem er góð og hjálpar mér þegar ég er veik.

 

Vá mér leið betur bara á því að skrifa þetta. Vonandi get ég mætt í vinnuna á morgun og losnað úr þessum veikindavítahring.

þangað til næst

chao  


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 00:40:34 / flugustelpa

Breytingar

13. janúar er í dag. Miðillinn minn sagði að eitthvað skemmtilegt eða merkilegt mundi gerast þennan dag, sem rættist. Því í gær fór ég og keypti rúm og hillu inn í herbergið hans Gabríels og ég fékk það sent heim í dag og setti þetta allt saman alveg sjálf og núna lítur herbergið hans ótrúlega vel út, Hann hefur aldrei átt svona flott herbergi, ég er mjög ánægð og þetta var mjög skemmtilegur dagur. Stebbi gaf okkur litla sjónvarpið sitt sem hann notar ekkert og núna getur Gabríel haft playstation og sjónvarp hjá sér, mér finnst þetta æði.

Pabbi gaf mér safapressu í afmælisgjöf og ég prufaði hana í dag og hún er geggjuð. Rosalega flott, passar mjög vel við öll hin eldhúsáhöldin og er rosalega góð. Takk pabbi minn fyrir að gefa mér svona flotta gjöf.

Yfirmaðurinn minn er hættur hjá okkur og fluttur til Akureyrar en hann gerði svolítið fyrir mig áður en hann fór. Hann sendi starfsmannastjóranum póst og tékkaði fyrir mig hvort eitthvað vantaði á skrifstofurnar hjá Átvr. Það væri æðislegt ef ég kæmist þangað, þá þarf ég ekki að skipta um fyrirtæki. Svo finnst mér mjög gott að vinna hjá þessu fyrirtæki. Það eru alls konar fríðindi og launin alls ekkert svo slæm. Mun betri heldur en að vinna hjá borginni eða sveitarfélögunum. Ég á bara eftir að fá svar frá þeim. Sjáum til hvað gerist. OHhh ég er svo ánægð. Það er allt svo æðislegt hjá mér núna. Ég ákvað að breyta aðeins í herberginu mínu og það lífgar svo upp á allt að breyta aðeins.

Svo er það þakklætislistinn:

Ég er svo þakklát í dag fyrir

1. að eiga frábæra íbúð

2. rúm fyrir son minn

3. nógan mat til að fæða mig og barnið mitt

 

þangað til næst gott fólk 


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 01:08:04 / flugustelpa

I´m living in að kind of daydream

Goddamn you tölva...Búin að skrifa alveg helling og þá ákveður tölvan að detta út. Jæja anywho, ég fór til frænku minnar í mat áðan og við vorum að ræða Danmörk, frábært land, vinkona hennar er að fara að flytja þangað og frænka mín er einnig mjög spennt. Eftir þetta samtal okkar varð ég ógeðslega spennt. Ég meina why not? Flytja til Danmerkur, virkar mjög spennandi út af mörgum ástæðum og ég held að þið vitið það. Miðillinn minn sagði við mig að ég ætti eftir að flytja út en samt ekki í mjög langan tíma og mér fannst það fáránleg hugmynd at that time, en núna!!!! frábær hugmynd. Kannski geri ég það bara. Ég hef svo sem ekkert hér til að hrópa húrra fyrir. það er ekkert sem stoppar mig. Gabríel mundi fíla það í tætlur. Hann er svo fljótur að aðlagast. Allavega er þetta eitthvað til að hugsa um.

Ég er að horfa á Stephen King mynd sem heitir The dreamcatsher sem ég hef séð áður og hún virkar alveg mjög heillandi og spennandi þangað til í lokin þá er þetta það fáránlegasta sem ég hef séð. Hvað er málið með Stephen King myndir og að enda illa? Stebbi kóngur my ass. Hann er enginn kóngur.

Hey smá þakklætislisti í lokin

Ég er svo þakklát í dag fyrir

1. að eiga frábæra frænku

2.að eiga frábæran pabba sem gaf mér safapressu í afmælisgjöf

3. að vera á lífi.

þangað til næst

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.01.2008 02:14:32 / flugustelpa

Þakklætislisti

Ég ætla að byrja á því að þakka öllum fyrir afmæliskveðjurnar sem ég fékk á afmælisdeginum mínum. Það er oftast besta gjöfin þegar fólk man eftir að maður eigi afmæli.

Mér var einu sinni sagt að það væri gott að minna sjálfan sig á hvað maður er þakklátur fyrir. Þannig að ég ákvað að skrifa smá lista

Ég er mjög þakklát í dag fyrir:

   1. að eiga þak yfir höfuðið

   2. að eiga heilbrigt og yndislegt barn

   3. að eiga bíl til að komast frá A til B

 

Því þetta eru bara alls ekkert sjálfsagðir hlutir, því ættum við að horfa í kringum okkur og sjá hvað við höfum það gott. Listinn getur alveg verið lengri en ég ætla að byrja á þessu.

Árið 2007 var ekkert alveg það besta ár sem ég hef upplifað og það er ýmislegt sem hefði betur mátt fara en ég ætla ekkert að fara nánar út í það. Það besta sem ég get gert í því er að láta þetta ár vera enn betra, því það er ég sem skapa minn eigin raunveruleika, ekki satt?

Finnst ykkur ekki æðislegt þegar maður er glaður og ánægður út af engu? Núna er ég mjög ánægð og það er engin ástæða fyrir því og það er svo æðislegt. Í rauninni er ástæðan sú að ég hef svo margt til að þakka fyrir. Allir sem hafa verið góðir við mig og gefið mér eitthvað eiga skilið stórt knús frá mér og mjög mikið þakklæti.. knús á alla vini mína

:P 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 18:00:34 / flugustelpa

bloggleysi

Þið verðið að afsaka bloggleysi en ég er alveg að fara að setja inn nýja færslu. ÉG er svo löt við þetta. En ég lofa að það verði bráðlega.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 22:50:53 / flugustelpa

infected mushroom

Það er ekkert komið langt síðan að ég bloggaði, er það nokkuð? :) Ok jú, kannski er best að fara að hripa einhver orð niður á blað. Málið er að ég hef bara ekki haft neitt að segja, því það gerist eiginlega ekkert hjá mér. En þar sem að það er útborgunardagur á morgun þá lifna ég einhvern veginn við. Ég verð hálf þunglynd þegar ég á ekki peninga, það er örugglega það leiðinlegasta sem ég veit um.

Ég mætti í vinnuna í dag með skattkortið mitt, því ég var löngu búin að gleyma að skila því og yfirmaðurinn minn horfði á mig eins og ég væri vangefin. Afhverju í andskotanum var ég svona sein með helv.. skattkortið. Ég hélt að ég væri ekkert of sein en hann sagði að launin væru keyrð út fyrir 20. Ég bað hann þá um að hringja í konuna í launadeildinni og athuga hvort ekki væri hægt að redda þessu, þá segir konan að hún sé með skattkortið mitt og allt í kei. En samt hélt ég á skattkortinu í hendinni og yfirmaðurinn minn sagði að ég væri í djúpum skít, hvernig í fj.. gat ég verið með skattkortið mitt og hún líka. En loksins kom skýring á þessu, hún gleymdi að taka kortið úr tölvukerfinu þegar ég hætti að vinna þarna síðast. hehe. No harm no foul. En þetta reddast allt saman þvi ég átti hvort eð er uppsafnaðann persónuafslátt og þá kemur þetta á sama stað niður. Þannig á morgun fæ ég útborgað plús barnabætur og þá fer maður sko að redda þeim hlutum sem maður hefur vanrækt síðustu mánuði.

Það er komið vetrarfrí hjá Gabríel í skólanum þannig að hann er í fríi á morgun, föstudag og mánudag. Þannig að ég og Stebbi þurfum að skiptast á að taka frí og ég tek frí á morgun. Þá förum við Gabríel að gera eitthvað skemmtilegt.

Ég er byrjuð að hreyfa mig aftur á hverjum degi. Er með svona stigavél heima sem ég get notað þegar ég kemst ekki í ræktina. Er búin að vera nokkuð dugleg og ætla að halda áfram á þessarri braut. Svo náttúrlega flýtir maður fyrir sér og notar slendertone flex beltið sem hjálpar maganum að vera flottari, svo tuttugu armbeygjur á hverjum degi og passa mataræðið þá ætti ég að vera góð...
Svo gerði ég soldið sniðugt í gær, ég kíkti á fimleikaæfingu niðrí Gerplu (fimleikafélagið sem ég æfði með fyrir 10 árum síðan) fyrir fólk sem var í fimleikum og vill halda áfram í svona "öldungahóp". Það eru æfingar á þriðjudögum og laugardögum en ég er ekki alveg viss hvort ég komist á laugardögum því ég er oftast að vinna á þessum tíma. En það verður ekki forever. Þetta er allavega ein hugmynd á hreyfingu og ég held að ég eigi eftir að fíla þetta, hoppa á trampolíni og leika sér í einhverjum gólfæfingum, kannski maður nái upp því sem maður gat í gamla daga. Ég var nefnilega helvíti góð í þessu, ég hlýt að hafa þetta ennþá í mér.

Eins og þið kannski vitið þá byrjaði að snjóa í vikunni og ég á sumardekkjum. Fór þá að hugsa að ég þyrfti að fara að fjárfesta í vetrardekkjum... god damn. Það er örugglega það leiðinlegasta sem maður gerir er að eyða peningum í að kaupa DEKK á bílinn. En þess þarf eins og svo margt annað. Svo þurfum ég og Gabríel að fara til tannlæknis, það er örugglega næst leiðinlegasta sem maður eyðir peningum í. Helvítis tannlæknar að græða á einhverjum skoðunum, þar sem þeir rétt kíkja á tennurnar og hreinsa þær og svo bless, takk fyrir í dag. Ég hef aldrei þurft að fara í meiri háttar aðgerðir hjá tannlækni en hef samt sem áður eytt morðfjár í þá. 

Var að horfa á "how to look good naked", áhugaverðir þættir. Hann er ekkert smá góður í því að fá konur til að efla sjálfstraustið, ég þyrfti eiginlega að kíkja til hans. Er ekki alveg nógu sátt með líkamann. Auðvitað skiptir sjálfstraustið öllu á því hvernig maður lítur út. Þú ert ekki sexý nema þér finnist það. Er þá ekki best að breyta hugsunarhættinum. HMMM spáum aðeins í því. ;)

Until next time

Chao good people 


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 15:37:14 / flugustelpa

black-eyed angels

Jæja núna er airwaves byrjað og ég á ekki passa eins og fyrri árin. Hefði alveg viljað vera með passa og getað farið á þá atburði sem ég hefði áhuga á. En svo auðvitað þurfti ég að fá svona hryllilega í magann í gær sem endaði með svita, titringi og óhemju sársauka. Ég endaði upp í rúmi klukkan 10 í gær og átti mjög erfitt með svefn, ég hef bara aldrei upplifað svona mikinn sársauka í maganum nema náttúrlega þegar ég átti Gabríel en það er heilbrigt ekki þetta. 

Mér líður samt mjög vel í sálinni sem er gott. En ég get ekki beðið eftir að fá útborgað, á eftir að fá slatta og barnabætur sem þýðir að maður getur aðeins rétt úr kútnum. Svo þarf ég nauðsynlega á litun og klippingu að halda. Get varla látið sjá mig svona um hárið. 

Ég pantaði mér fullt af fötum um daginn úr josefsson (búðin sem er komin á móti kringlunni í staðinn fyrir H&M) hlakka ekkert smá til að fá þessi föt því fataskápurinn minn er þvílíkt mess. Þarf mikið að fara að endurnýja. Svo er líka alltaf gaman að fá ný föt.

Allavega þá hef ég ekki mikið að segja, ætla láta þetta gott heita. Kem með eitthvað sniðugt næst 


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 23:08:26 / flugustelpa

Hættu að gera lítið úr þér

"Þegar þú hættir að setja möguleikum þínum takmörk getur hver dagur í lífi þínu orðið eins ánægjulegur og óvænt ávísun í pósti" (Victoria Moran)

Þetta er eitthvað sem við vitum öll. Við erum okkar verstu óvinir. Það er enginn sem getur gert eins lítið úr okkur eins og við sjálf. Ég er mjög dugleg við þetta. Ég er aldrei nógu ánægð með neitt sem ég geri, því það þarf allt að vera fullkomið, þannig er ég. t.d. hefur mig langað að léttast aðeins og líta aðeins betur út en málið er að ég verð örugglega ekkert sátt þá heldur. Það mun alltaf vera eitthvað. Svo lengi sem ég hef heilsuna mína og er ekki að drukkna úr spiki og er ekki bólugrafinn lúði þá held ég að ég geti verið nokkuð sátt við sjálfan mig. En svo leynast alltaf svona hugsanir djúpt innan í manni t.d. að maður sé ekki nógu góður í hinu og þessu eða að maður sé hreinlega ekkert merkileg manneskja. Þegar ég trúi þessu þá væntanlega er ég það ekki, ekki satt? En þar sem ég er búin að uppgötva að ég er frábær manneskja, á góða vini, góða fjölskyldu, æðislegt barn, hús yfir höfuðið, er menntuð, á bíl, vinnu og svo mætti lengi telja, þá sé ég það að ég er mjög heppin og hef laðað alla þessa hluti að mér, þá hlýtur nú að vera eitthvað varið í mig. En svona kemur fyrir, maður þarf að gera lítið úr sjálfum sér, eins og maður sé hræddur við að vera einhver egóisti ef maður hrósar sér. Ég er bara búin að komast að því að það er enginn að fara að passa upp á það að ég sé manneskjan sem ég er nema ég sjálf og þar af leiðandi þarf ég að sjá til þess að ég sé hamingjusöm.

Ástæðan fyrir því að ég er að vitna í Victoríu Moran er sú að hún skrifaði eina ágæta bók þar sem hún kemur með nokkur góð stikkorð. Bókin sem slík er ekki beint skemmtileg aflestrar en þegar ég hugsa um hverja setningu fyrir sig og skrifa niður mínar skoðanir á því þá sé ég að ég get tengt hvert og eitt atriði sem hún tekur fyrir við sjálfan mig og kannski lært eitthvað af því. Maður lærir mest á því að skrifa hluti niður eða segja þá við aðra. Fyndið að þessi setning hafi verið næst á dagskrá því ég hef einmitt verið að gera lítið úr sjálfri mér síðustu daga og byrjað að hugsa fáránlegustu hluti um fólkið í kringum mig og haldið að allir séu á móti mér. Maður getur verið svo vitlaus. Maður á það líka til að taka allt það neikvæða sem allir segja og gera og snúa því upp á mann sjálfan þegar maður er í svona ástandi. Er komin með nóg af því að haga mér svona gagnvart sjálfri mér. Rut svona ert þú take it or leave it. Æji ég er eiginlega að spá í að segja leave it :haha:
Nei nei hugsum vel um okkur sjálf því það getur það enginn eins vel og við. TRUST NO ONE hehe.

Rut vinkona er að fara að gifta sig á morgun og ég er svo hamingjusöm fyrir hennar hönd og þetta á eftir að vera svo frábært. Hún er búin að vera með sama manninum í 10 ár og það hefur gengið upp og ofan en loksins ákváðu þau að þau hafi fundið sálufélagann sinn og ákváðu að ganga í það heilaga, sem er æðislegasta sem tvær manneskjur sem elska hvort annað geta gert. Ég elska brúðkaup og allt sem því fylgir, þrátt fyrir það að ég sé ekki einu sinni í sambandi þá er ég samt búin að ákveða brúðarkjólinn og nánast allt sem því fylgir ó mæ god ég er svo pathetic :haha: en ég er kona og við hugsum svona, er það ekki stelpur?

Er að fara í próf í verslunarreikningi á morgun og ætla að fara að læra.. Læt þetta gott heita...

ble ble 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 21:57:08 / flugustelpa

Njóttu þess að vera sérvitur

"Það krefst mikillar orku að leyna hluta af persónuleikaþáttum sínum. Ef þú kæfir of marga þeirra áttu á hættu að glata hluta af sálu þinni." (Victoria Moran)

Það sem átt er við með sérvisku er að hafa sérstaka visku og þessi viska fellur ekki inn í viðtekið mynstur. Með öðrum orðum eitthvað sem þú gerir algjörlega öðruvísi en aðrir. Ef þú samþykkir "skrýtnu" þættina í sjálfri þér og leyfir þeim að njóta sín geturu orðið heilsteyptari manneskja en ella. Þetta eru þættir sem gera okkur sérstök. Margir telja sig ekki hafa neina svona þætti en ég held að allir hafa þá sumir hafa bara kæft þá eða týnt þeim. Reyndar á ég mjög erfitt að finna hluti í mér sem eru sérstakir en þá er bara ekkert annað að gera heldur en að grafa þá upp. Talað er um að það sé gott að rifja upp tímana þegar maður var sex ára og reyna að muna hvernig manneskja maður vildir vera þá og þessir þættir séu sérviska manns. Kannski maður ætti að prufa það einhvern tímann.


Ég fór á námskeið í vinnunni í dag sem heitir samskipti og einelti eða einelti á vinnustað. Það er alveg ótrúlegt hvað þetta er orðið algengt vandamál í dag. Samkvæmt könnun sem fyrirlesari námskeiðsins gerði þá er það um það bil 22% sem er mjög há tala. Mun minna í nágrannalöndum okkar. Einelti á vinnustað er skilgreint sem tíðar og neikvæðar athafnrir sem beitt er af einum einstaklingi eða fleiri gegn vinnufélaga sem á erfitt með að verja sig. Þessar athafnir valda þeim einstaklingi sem fyrir þeim verður mikilli vanlíðan og grafa undir sjálfstrausti hans. Þetta er mjög alvarlegt mál og ég persónulega veit um eitt svona tilfelli, reyndar ekkert sem ég get gert í því þar sem ég vinn ekki þar. En ég get náttúrlega aðstoðað þennan umrædda einstakling.

Í morgun vaknaði ég ógeðsleg. Ég horfði í spegil og ég leit út eins og skrímsli. Var komin með stóra frunsu á ennið og eina stóra bólu við hliðina á frunsunni. Getur maður orðið ógeðslegri og þegar ég lít svona illa út þá nenni ég ekki einu sinni að reyna að bæta úr því. Hárið á mér var í einum flóka og ég var skjannahvít í framan eins og ég værir draugur. Ég mætti í vinnuna eins og uppvakningur fólk varð nánast hrætt við mig :evil:. (kannski pínu ýkt en mér leið þannig). Ég fór að kalla mig Bólu. Í dag hét ég Bóla. Ekki nóg með það þá er ég með sár á nefinu sem gerir það geðveikt rautt þannig að ég lít líka út eins og Rúdólfur. Stundum á ég svooo slæma daga með útlitið á mér að ég fer öll í mínus og allur dagurinn verður hálf ömurlegur. Svo er ég öll út í örum eftir þessar helvítis frunsur sem spretta upp hvar sem þeim dettur í hug á andlitinu á mér. Ég get stundum verið svo gölluð. Stundum langar mig bara að fá nýja húð. Bara taka þessa af og fá nýja. 

En svona til að bæta upp ástandið á mér þá mun ég byrja aftur að taka á því í ræktinni, ég er búin að finna mér tíma til að drullast. Ég mæti bara á morgnana á þriðjudögum og fimmtudögum áður en ég fer í vinnuna því þar er smá dauður tími þegar ég er búin að koma Gabríel í skólann, svo get ég farið eitthvað um helgar líka. Það er allavega byrjun. Ég ætla að koma mér í form og þar sem mataræðið mitt er orðið svo gott og skjaldkirtillinn komin í lag þá hlýtur þetta að fjúka af mér.

ÉG sé að 17 manns hafa kíkt á síðuna í dag, er ekki málið að kvitta fyrir sig þótt það sé ekki nema hæ. Þá veit ég allaveganna hver er að lesa. 

Ble ble

 

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 19:40:59 / flugustelpa

Gættu tungu þinnar

"Þegar þú ert orðvönd verndarðu sjálfan þig. Þú viðheldur heiðri þínum og krafti." (Victoria Moran)

Það sem er átt við með orðvendni er að hemja sig og segja ekki alla hluti við alla. Orðvendni felur ekki í sér að vera kuldalegur og fáskiptinn eða að loka tilfinningar sínar inni og leyfa þeim að grafa þar um sig. Orðvendni þýðir einfaldlega að halda einkalífi sínu fyrir sjálfan sig og ræða það ekki nema við fáa og vandlega útvalda. Þetta minnir mig á þegar ég var yngri þá átti ég það til að vera svo mikið fórnarlamb að ég ræddi oft alla hluti um sjálfan mig við fólk sem ég var ekkert endilega svo náin. En í dag þá á ég erfitt með að ræða þessa hluti við nokkurn mann. Það er náttúrlega allt gott í hófi en ég er svo svört og hvít manneskja að ég þarf alltaf að fara út í öfgar í báðar áttir. Maður verður að stilla sig í hóf, en þá er það líka bara verkefni fyrir mig að reyna að vera á gráa svæðinu. Eins og sálfræðingurinn minn sagði við mig þá á ég það til að vera allt eða ekkert mannekskja sem er kallað með öðrum orðum fullkomnunarárátta, ef ég geri ekki allt fullkomið þá sleppi ég því en ég er að vinna í þessu og þetta er allt að breytast.

Það er kominn mjög langur tími síðan ég bloggaði síðast. Ég hef verið mjög löt og ég biðst afsökunar á því. Ég er nánast í prófum í hverri viku og svo er ég að vinna næstum því 80% vinnu í ríkinu þannig að það er nóg að gera. Svo er ég orðin x-files fíkill og er búin að kaupa mér fjórðu og fimmtu seríu. Mamma tók upp fyrir mig 1. og 2. seríu og keypti handa mér þriðju seríu úti í Bretlandi og ég bara get ekki hætt að horfa á þetta, þetta er svo spennandi og skemmtilegt. Ég man að ég horfði eitthvað á þessa þætti þegar þeir voru sýndir fyrir nokkrum árum á ríkissjónvarpinu og þeir þættir sem ég sá voru einungis úr annarri seríu þannig að ég er að horfa á þriðju, fjórðu og fimmtu seríu í fyrsta skipti. Svo endar hver sería alltaf svo spennandi að ég er bara rokin út í næstu búð til að kaupa næstu seríu.

Svo var ég að kaupa mér enn eina bókina og hún heitir kaloríukvótinn og er mjög áhugaverð, þetta er svo sem allt sem ég veit en það er alltaf gott að rifja upp og festa þessa hluti í undirmeðvitundina svo maður sé nú gegnsósaður í þessu.

Þar síðustu helgi vorum við vinkonur hennar Rutar að gæsa hana og þetta gekk allt mjög vel fyrir sig og Rut var ánægð sem er náttúrlega fyrir öllu svo er bara stóri dagurinn hjá þeim 6. október, úff maður þarf að fara að ákveða í hverjum maður ætlar. Ég hef fitnað svolítið þannig að það er ekki mikið úrval í skápnum, þannig að það er kannski ekki svo vitlaust að fara að fjárfesta í nýjum fötum. Maður verður nú að líta vel út því kannski sér maður einhvern spennandi strák í brúðkaupinu, alltaf að vera með augun opin :lol:

Gabríel fékk bók með sér heim úr skólanum í síðustu viku og þurfti að byrja að lesa. Þetta gekk nú hálfbrösulega fyrst en hann er alveg að ná þessu núna. Hann á mjög erfitt með að lesa orðin ef orðið byrjar á samhljóða, hann er ekki alveg að átt sig á því, en þetta kemur með tímanum og ég er mjög stolt af honum. 

Þannig að flest allt er nú að ganga upp hjá okkur mæðginum og öllum líður vel. Eina sem ég pirra mig alltaf á á þessum árstíma er að það er orðið svo kalt og ég gleymi því á hverju ári hversu hræðilega illa ég þoli þennan kulda. Ég verð öll hálf ómöguleg. Lít illa út, fæ frunsur út um allt andlit, hárið á mér verður rafmagnað og erfitt viðureignar og mér líður hálf illa í húð og hári. En þá er bara eitt til ráða, að fjárfesta í góðu kremi og góðri spray in hárnæringu og þetta verður bara að vera í töskunni minni. Maður þarf bara að redda sér. 

 Þar til næst blessaða fólkið mitt

Rutla


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 16:51:49 / flugustelpa

Bjóddu ævintýrunum heim

"Fagurt líf er frjótt líf. Þú getur öðlast það með því að slaka á, létta þér upp og bjóða heim fólki og aðstæðum sem örva þig." (Victoria Moran)

Við erum menningarverur og þráum ævintýri. Sumir sækjast í hættulegar íþróttir eins og klettaklifur, fallhlífastökk, teygjustökk o.s.frv. En aðrir fara á línuskauta, í utanlandsferðir eða horfa á spennumyndir. Það er eitthvað sem ég mundi gera, ég er allavega ekki spennufíkill en ég er mjög ævintýragjörn og hef gaman af að gera öðruvísi hluti en daglegt líf. En svo eru enn aðrir sem leita ævintýranna í niðurdrepandi sápuóperustíl. Þessi skortur á ævintýrum stafar af því að við höfum læst lífið inn í værðarlegri umgjörð þar sem allt er þægilegt og öruggt en raunin er sú að þrátt fyrir að við lifum í þessarri öruggu umgjörð þá er fólk nú hræddara en nokkru sinni fyrr. Við reynum að berja á hverri ógn og hættu og á meðan er hugur okkar heltekinn af því. Og vegna þess að það er óraunhæft að forðast hætturnar algerlega, en hræðilegt að horfast í augu við þær, vafrar fólk á milli ótta og flótta. Þegar við auðgum lífið okkar með heilbrigðri ævintýramennsku verður lífið svo áhugavert að við þurfum ekki á erfiðleikunum að halda, en um leið eflum við hugrekki okkar svo við getum tekist á við vandamálin þegar þau birtast.

Ég hef verið föst í ótta og flótta þar sem ég breyti aldrei úr vananum og festist í því að gera sömu hlutina aftur og aftur, það er í raun bara að drepa tímann í stað þess að nýta hann í eitthvað uppbyggilegt og gera eitthvað nýtt á hverjum degi sem maður hefur aldrei áður gert. Þetta er hræðilegur staður, mamma mín festist þarna í mjög góðan tíma en er farin að rífa sig upp úr þessum aðstæðum sem er alveg frábært og maður sér mikinn mun á henni, go mamma ;). Þetta er líka talin vera ein ástæða offitunar að festast í vananum. Líkaminn þarf örvun og breytinga frá vanabundnum stellingum. Þetta er ekki góður staður að vera og maður á að venja sig á að gera mismunandi hluti á hverjum degi. Á meðan á þessu stendur finnst manni þetta besta leiðin því þetta er það eina sem maður kann og heilinn virkar þannig að hann er bestur í því sem hann gerir oftast, sem leiðir til þess að æfingin skapar meistarann ekki satt? Því meira sem maður gerir af einhverjum hlut því auðveldara er að gera hann. Eins og að vakna og bursta tennurnar eru hlutir sem heilinn þarf enga umhugsun og gerir ósjálfrátt það stafar af því að við höfum búið til taugabrautir sem sjá um þessa hegðun og þær er virkar á hverjum degi og eru mjög sterkar. Ég hef heyrt út undan mér að fólk hefur lent í þeim aðstæðum að hafa bara einfaldlega ekki getað staðið upp úr rúminu og gert einfaldan hlut eins og að bursta tennurnar, sem stafar líklega af mikilli vanrækslu og mjög líklega af misnotkun vímuefna eða áfengis. Stundum þarf fólk bara að læra upp á nýtt því taugabrautirnar fyrir þessa hegðun eru horfnar.

Fyrst ég er farin að tala um taugabrautir þá er alveg eins gott að minnast á það hvað það er erfitt að fara að hreyfa sig þegar maður hefur ekki gert það í langan tíma það stafar af því að með tímanum þá hætta þessar taugabrautir fyrir þessa hegðun að virka og hverfa á endanum. Þetta er allt líffræðilegt, því meira sem maður gerir af einhverju því auðveldara er að gera það og þetta er ástæðan.

En núna ætla ég út í aðra sálma. Ég fór með stelpunum mínum á tónleika á Nasa á fimmtudaginn þar sem ljótu hálfvitarnir og Hvannadalsbræður voru að spila og þetta var rosalega flott show. Þeir eru allavega með húmorinn í lagi og mjög góðir textahöfundar og þá meina ég báðar hljómsveitirnar en Ljótu hálfvitarnir stóðu samt upp úr. Þeir byrjuðu á því að kynna sig og þetta var ekkert smá kynning, þeir eru eitthvað um 7 eða 8 ,ég náði ekki að telja þá, og lýsingarorðin sem voru notuð til að kynna hvern og einn var þvílíkt og annað eins. Þeir eru sem sagt mjög góðir í því að gera grín af sjálfum sér. Mér finnst frábært hvað strákar geta gert mikið grín af sjálfum sér og vinum sínum án þess að vinirnir verði móðgaðir, þetta er alvöru húmor. Við stelpurnar yrðum bara móðgaðar ef við færum að segja að ein væri 120 kíló og væri rauðhaus og svo framvegis. Ég man ekki nákvæmlega orðin sem notuð voru en þetta var allavega mjög fyndið. En þetta kvöld endaði með smá tjútti og við enduðum á að fara á deco að hlusta á þrjá myndarlega karlmenn taka nokkur fræg lög. Þeir meira að segja tóku sweet child in time með deep purple sem ég bjóst ekki við að neinn karlmaður gæti sungið en ó mæ god, hann náði háu tónunum, þvlíkur söngvari :S.

Hann Gabríel minn labbaði einn í skólann í gær og ég var með hjartað í buxunum allan tímann og hafði áhyggjur á því að hann mundi týnast eða verða fyrir bíl eða bara hreinlega koma of seint. En svo var hringt í mig um 10 leytið og sagt að Gabríel hafi dottið og meitt sig þannig að tönnin hans fór í gegnum vörina og ég þurfti að koma og sækja hann strax. En þegar ég kom þá var hann búin að vera svo duglegur og sterkur og komst vandræðalaust í skólann, ég var svo stolt af honum og konan sem var að hugga hann sagði að hann væri búin að vera ofboðslega duglegur. En hann var samt pínu lítill í sér þannig að ég fór með hann heim en þetta náði að jafna sig á einum degi, núna er hann bara með pínu sár á vörinni :D. Rut stolta

Þangað til næst

Rutla flugustelpa


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 21:45:37 / flugustelpa

Sættu þig við hið óumbreytanlega með reisn

"Við öðlumst kjark til að takast á við raunverulega erfiðleika með því að taka smámununum með yfirvegun." (Victoria Moran)

Allir þeir sem geta lifað góðu lífi með því óumbreytanlega búa yfir verulega hagnýtum hæfileika. Án hans getum við aðeins lifað góðu lífi þegar allt er fullkomið með öðrum orðum aldrei. Við öðlumst kjark til að takast á við raunverulega erfiðleika með því að mæta smámununum af yfirvegun.


Ég lenti einmitt í svona smá vandamálum í dag, sem sagt peningavandamál sem ég ætla ekkert að fara nánar út í. Ég byrjaði að mikla þetta geðveikt fyrir mér og var komin í svona vonlaust ástand og þá varð allt ómögulegt. En ég ákvað að taka þessu með reisn eins og Victoría segir ég mun ekki vera í peningavandamálum það sem eftir er. Er kannski búin að klúðra miklu í sambandi við fjármál í fortíðinni en ég ætla ekki að láta það endurtaka sig. Það þýðir ekkert annað en að byrja bara upp á nýtt. En í sambandi við vinnuna þá ætla ég ekki að vinna hjá vero moda því bæði eru launin ömurleg og vinnutíminn er ekki góður. Sem sagt léleg laun fyrir ógeðslega vinnutíma og álag.

Ég sótti um í apótekinu hérna upp í spöng og vinnutíminnn þar hentar mér mjög vel með skólanum og svo er þetta frábær staðsetning. World class í sama húsi og svona getur ekki verið betra. Þannig að ég vona að ég fái það þá er það bara komið, hef líka alltaf haft pínu áhuga á að vinna í apóteki, veit ekki alveg afhverju.

Skólinn byrjaði á mánudaginn og það er strax búið að setja próf fyrir í windows umhverfinu en þetta er nú ekkert mál, bara skriflegt. Þarf bara að svara spurningum um svona basic atriði. Ég var aðeins að líta í bókina áðan og þetta er mjög góð bók, maður lærir í rauninni allt frá grunni sem er mjög gott því þetta er oft hlutir sem maður spáir ekkert mjög mikið í. Þetta gefur manni sem sagt góðan grunn við tölvuvinnu. Ég man þegar ég lærði eitthvað um þetta í Verzló og ég vissi ekkert hvað þetta allt saman var. Þetta var bara ógnvekjandi fyrir mér. En núna er maður búin að læra svo mikið á tölvur að þetta er ekkert mál. Gott að hafa átt kærasta sem er tölvunörd, lærði allavega eitthvað á honum. ;)

Dagurinn í dag var sem sagt ekkert æðislegur út af þessum fjármálavandamálum en ég reddaði því og líður strax betur. Ég þarf bara að vera mjög skipulögð.

Allar vinkonur mínar eru svo duglegar, Unnur að fara að læra meira, Þórey búin með sálfærði og farin að kenna í framhaldsskóla, Rut að klára sálfræðina, Steinunn og Guðrún Inga búnar með kennó, Helga að fara að kenna spænsku og klára ferðamálafræði, Helga Sig og Telma í þroskaþjálfaranum, Björg að útskrifast um jólin og Begga og kallinn hennar bara nánast komin með fyrirtæki, Heiða frænka komin í nýja vinnu og komin með yndislegan mann. Ég held að ég geti bara ekki verið meira stolt af ykkur stelpur. Þá ætla ég líka að gera eitthvað ofboðslega sniðugt og klára þetta nám og fara svo seinna í meira nám. jei gaman gaman. 

Ég horfi jákvæðum augum á framtíðina. 
Rutla litla jákvæðastelpa


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 22:36:10 / flugustelpa

Sigrastu á vandamálunum

"Ef þú sækist eftir fögru lífi, eða jafnvel bara vonarglætu, verðuru fyrst að gera þér grein fyrir helstu vandamálunum." (Victoria Moran)


Stærsta gjáin á milli mín og fagurs lífs eru mín eigin vandamál, minn eigin hugsunarháttur og mín hegðun. Það er engin sem getur gert líf mitt fagurt nema ég sjálf. Þegar maður áttar sig á þessu er eins og maður nái allt í einu stjórn á lífi sínu. Ég hengdi mig mikið upp á aðra hér áður fyrr og hélt að það væri öllum öðrum að kenna að mér liði eins og mér leið. Ég var mjög mikið fórnarlamb. Þrátt fyrir að maður viti alveg alla þessa hluti þá er eins og maður trúi þeim ekki. Trúi því ekki að það skipti máli hvernig maður hugsar. Bara að átta mig á því að ég er vandamálið í mínu eigin lífi gaf mér mjög mikið frelsi. Auðvitað lagaðist lífið ekki strax en ég fór smátt og smátt að átta mig á því að ég skapa mér mína eigin hamingju. Maður lifir sínu lífi eins og maður heldur að maður eigi að lifa því, en svo lærir maður og þroskast og þá fer maður að átta sig á því að kannski hefur maður ekkert verið mjög sniðugur í fortíðinni. Ég hef allavega lært mikið af minni reynslu og ætla að halda áfram á þessarri braut.

 

Í dag var eiginlega fyrsti vinnudagurinn minn, það er að segja ég var ekki í prufu. Það kom stelpa frá Danmörku sem er stílisti og var að fara yfir búðina og laga það sem þurfti að laga. Ég var fengin til þess að aðstoða hana í þessu. Ég lærði alveg heilmikið á henni. Þetta er allt mjög útpælt, ég hef aldrei pælt í því að uppröðin á fötunum er fyrirfram ákveðin. Það kemur alltaf ný herferð í hverjum mánuði og sú herferð á að vera á svokölluðum A spot. Þetta eru sem sagt föt sem þau geta keypt mjög ódýrt og geta selt dýrara og græða heilmikið á og þetta þarf allt að seljast á einum mánuði. Þess vegna eru þau sett fremst í búðina þannig að viðskiptavinurinn sjái þau fyrst, yfirleitt eru þetta föt sem allir fíla og allir geta notað. Í ágúst mánuði er lagt áherslu á renndar hettupeysur í öllum litum. Í næsta mánuði verður lagt áherslu á gallabuxur. Á hverju borði þarf alltaf að vera sett, þ.e. peysa og buxur eða bolur og buxur og á hverri slá þarf líka að vera sett þannig að viðskiptavinurinn kaupi frekar buxur líka heldur en bara peysu. Anywho þá er mikil sálfræði á bakvið þetta og ég lærði hvernig á að stilla upp í glugga, raða á slá, á borðin og hvað þarf að snúa fram. Þetta var mjög lærdómsríkt. Kannski maður endi á að verða stílisti, nei segi svona.

 

Það gengur allt mjög vel í skólanum hjá Gabríel, fyrir utan það að hann týndi einni úlpu og tveimur húfum á fyrstu tveimur dögunum. En sem betur fer er ég búin að finna það aftur. Ég hélt sem sagt ræðu yfir honum að núna væri hann kominn í skóla og hann þyrfti að taka ábyrgð á sínu dóti sjálfur, það er enginn sem gerir það fyrir hann. Þvílík viðbrigði fyrir hann því allt þetta var gert fyrir börnin á leikskólanum og þau þurftu ekki að færa sig á milli húsa. En Gabríel veit núna að hann þarf að taka öll útiföt með sér í frístundaheimilið svo að ég geti tekið það með honum heim þegar ég sæki hann. Þvílíkt mikið að gerast hjá litlu barni. En hann er mjög góður að hlusta þegar ég tala við hann og hann tekur eftir. Hann var mjög stoltur að hafa haft allt dótið hjá sér þegar ég sótti hann í dag sem sýnir að hann hafi tekið eftir þegar ég hélt ræðu yfir honum í gær.

 

Rósa systir fór til miðils í gær og miðillinn ræddi mikið um mig. Hann sagði að mér ætti eftir að ganga mjög vel í náminu mínu og að ég mundi hitta manninn minn áður en árinu lýkur, einnig sagði hann að ég mundi verða ófrísk áður en árinu lýkur... HMMM það fannst mér mjög skrítið því það er sko engan veginn planið, sérstaklega ef ég er bara nýbúin að kynnast þessum gæja. En svo talaði hann um að allt sem hann segir gæti skeikað um eitt ár. En allir sem Rósa þekkir sem hafa farið til hans hafa upplifað allt sem hann sagði, þannig að ég veit ekki alveg hverju ég á að trúa.. En hér verður þetta allt skrifað þannig að ég get skoðað þetta seinna og séð hvort eitthvað af þessu hefur ræst en auðvitað ætla ég ekki að lifa eftir þessu, hlutirnir fara eins og þeir eiga að fara.

 

Ég fitna bara og fitna. Mér líður eins og ég sé að springa. Ég hlakka mikið til að sjá hvað kemur út úr blóðprufunni sem ég þarf að fara í til að athuga skjaldkirtilinn, því þetta er nákvæmlega eins og síðast þegar ég fitnaði. Ég hef engu breytt varðandi mataræðið nema bara til hins betra, hreyfði mig eins og mófó í sumar, hef minnkað það mikið, en ætla samt að halda áfram um leið og ég veit hvað er að gerast með mig. Nenni voða lítið að fara í ræktina ef það hefur engin áhrif. Ég er að fara á fimmtudaginn til læknis og þá vona ég að ég fái einhver svör. 

Ég gerði góðverk í dag, gerðist heimsforeldri þar sem ég legg mitt af mörkum til að hjálpa þeim sem minna mega sín. Þetta er mjög einfalt, það verður einfaldlega teknar heilar 1000 kr af reikningnum mínum mánaðarlega og einhver annar fær að borða. Ég verð nú eiginlega að segja að það er ekki mikill peningur. Þessar 1000 kr. færu líka örugglega í eitthvað óhollt fyrir mig, sem ég þarf ekki á að halda. 

 

Þórey mín er að koma í bæinn á föstudaginn og við ætlum að kíkja á kaffihús, ég hlakka ekkert smá mikið til að hitta hana. Henni gengur svo vel í lífinu og ég er svo stolt af henni. Þórey mín þú ert æði.

 

Lífið er lotterí

Rutla litla flugustelpa

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 22:37:21 / flugustelpa

Varðveittu orkuna


"Losaðu þig við ómerkilegustu orkuþjófuna, þá verða miklu fremur góðar og gildar ástæður fyrir því að þú þreytist." (Viktoria Moran)
 
Já maður lendir mjög oft í því að að eyða óþarfa orku. Það fer til dæmis ákveðin orka í það að horfa á sjónvarpið, það gerir mann stundum andlega þreyttan. Svo fær maður orku þegar maður eyðir orku. Eins og til dæmis að fara í ræktina. Það virkar svo öfugt eitthvað. En ég hef alveg fundið fyrir því að ég er mun hressari og orkumeiri þegar ég fer í ræktina heldur en ella. Svo getur maður verið svo þreyttur að maður meikar ekki að fara í ræktina, þetta er hálfpartinn vítahringur.
 
Það er kannski kominn tími til að skrifa eitthvað hérna. Það er ýmislegt búið að gerast síðustu vikuna. Ég er sem sagt að fara að byrja í Nýja tölvu- og viðskiptaskólanum 3. september og er að fara í skrifstofu og tölvunám. Með skóla mun ég vinna í vero moda. Fór í prufu síðasta fimmtudag og konunni leist geggjað vel á mig, náði þessu öllu strax eins og ég hefði aldrei gert neitt annað. Svo fæ ég að vera algjör gella í vinnunni, það er náttúrlega bara geggjað. Hún sagði við mig að hún vildi að við værum málaðar og mér finnst svo gaman að vera máluð þannig að þetta á vel við mig.
 
En þetta er ekki eina sem er búið að gerast. Hann Gabríel minn var að byrja í skóla á fimmtudaginn. Hann er orðin svo stór strákur og ég er svo stolt af honum. Hann var sem sagt að byrja í Húsaskóla þar sem hann þekkir engan. Ég er alveg viss um að hann sakni vina sinna á Sólhlíð en hann er samt svo duglegur að kynnast nýjum vinum, þannig að þetta var ekkert mál fyrir hann. Þótt þetta hafi verið geðveikt erfitt fyrir mig. Ég átti sem sagt soldið erfitt þegar ég var lítil, var alltaf kvíðin og áhyggjufull um að ég mundi ekki eignast neina vini og svona og ég er eiginlega að upplifa þetta í gegnum hann þannig að þetta er erfiðara fyrir mig heldur en hann, sem betur fer er hann ekki eins og ég var. Gabríel er góður, skemmtilegur og æðislegur strákur og mun eignast fullt af vinum, hef enga trú á öðru. 
 
Síðasta helgin af sumrinu var að líða og ég og Gabríel kíktum með Unni vinkonu og dóttur  hennar í útilegu í boði Línuhönnunar sem Unnur vinnur. Þetta var frábær ferð og ég þakka Unni kærlega fyrir að bjóða mér með. Ég og Gabríel skemmtum okkur konunglega. Ekki nóg með það heldur náðu Gabríel og Bryndís mjög vel saman sem er alveg frábært. Gott þegar börnin ná saman við börn vina manns. 
 
En í sambandi við hreyfingu, þá hefur verið frekar lítið af henni. Reyndar löbbuðum við mikið í útilegunni og fórum í leiki og svona en ég át svo mikið að það hefur örugglega bara bætt upp kaloríurnar sem brunnu. Núna er að koma september og ég ætla að vera mjög skipullögð með mataræðið og hreyfa mig reglulega.  Svo er ég líka með kort í Fyrir og Eftir sem er heilsustúdíó og hjálpar manni að losna við mestu fituna sem ætti að gera mér auðveldara fyrir að ná þessu af mér. 
 
Ætla ekki að hafa þetta lengra núna
Rutla litla flugustelpa 

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 00:19:36 / flugustelpa

13. ágúst

5. Orlofslögmálið
 
"Líttu á líf þitt sem endalaust orlof. Vertu ferðamaður í lífi þínu og umhverfi." (Victoria Moran)
 
Auðvitað á allt lífið að vera orlof. Hversdagsleikinn getur verið mjög skemmtilegur ef maður gerir hann skemmtilegan. Það er náttúrlega undir manni sjálfum komið, er það ekki? Stundum þá er maður bara einn með sjálfum sér og þá verður manni að líka vel við sjálfan sig. Mér finnst ég það skemmtileg manneskja að ég á auðvelt með að vera bara ein með sjálfri mér. En auðvitað lífgar upp á lífið ef maður á góða vini og getur hitt þá reglulega. 
 
Núna sit ég uppí rúmi með x- files í tækinu og slendertone flex beltið mitt og læt það vinna fyrir mig magaæfingarnar. En auðvitað geri ég sjálf magaæfingar líka en þetta ætti að hjálpa mér eitthvað. 
 
Ég fékk slæmar fréttir í dag, ég fékk ekki vinnuna sem ég var að vonast til að fá en í stað þess að væla yfir því þá ákvað ég að drífa mig bara í Nýja tölvu og viðskiptaskólann og ná mér bara í almennilega gráðu og vinna með því, og þegar því er lokið þá ætti ég að geta fengið betri vinnu með betri laun. Þannig að ef maður er bara jákvæður þá finnur maður nýjar leiðir. Ég var reyndar næstum því farin að gráta en það var líka bara af því að mér fannst allt vonlaust, en í guðanna bænum þá verður það nú varla betra ef maður fer að vorkenna sjálfum sér. 
 
Ég borðaði aðeins yfir mig í kvöldmat. Hvað er þetta með að éta alltaf svona mikið á kvöldin. Þá er maður alltaf svangur og langar í eitthvað djúsi. Ég er alltaf mjög dugleg allan daginn með mataræðið en svo þegar klukkan er svona sex þá öskrar líkaminn á eitthvað ógeð, svo þegar ég er búin með kvöldmatinn þá verð ég náttúrlega að fá eitthvað sætt, what´s that all about. 
 
Markmiðið mitt er ennþá að missa 7 kíló og ég ætla að lofa sjálfri mér að þetta verði allt farið fyrir jól. :lol:
 
Það væri mjög gaman að fá comment frá fólki ef þið yfir höfuð skoðið þetta blessaða blogg mitt. En annars finnst mér nú bara alltaf gott að skrifa aðeins um það sem ég hugsa... Anywho
 
Þar til seinna 
Rutla litla flugustelpa

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill